Fyrir þá sem vilja fylgjast með framþróun í sjávarorkunýtingu á heimsvísu er ýmislegt efni í boði.  Af íslensku efni má benda á skýrslu Valorku; "Sjávarfallaorka 2025", sem aðgengileg er t.d. á hlekk hér á upphafssíðunni.  Hún er líklega eina uppfærða heildarumfjöllunin á íslensku, og er fjölmargt í henni sótt í erlenda miðla.

Út er komin ársskýrsla IEA-OES (sjávarorkudeildar Alþjóða-orkumáastofnunarinnar) fyrir árið 2025.  Eins og fyrri skýrslur stofnunarinnar er hún yfirgripsmikið og ítarlegt heildaryfirlit á þessu sviði.  Þar eru tilgreindir markverðustu áfangar í þróuninni; stærstu verkefnin sem eru í gangi og mismunandi leiðir og nálganir sem lönd hafa valið sér.  Talin eru upp stærstu sjávarorkuverkefnin í hinum ýmsu löndum heimsins. Skýrsluna má nálgast hér.  

Önnur áhugaverð síða um stöðu tækniþróunar er vefsíða "Ren-21", sem birtir fréttir og yfirlit um hvaðeina sem snertir þróun endurnýjanlegrar orku.  Sjá hér.  

Nokkur tímarit eru gefin út um sjávarorku og þróun tækninýtingar, þar sem fylgjast má með helstu fréttum.  T.d. þessi:

Offshore energy

IEEE Specrum Tidal power

Renews-biz Wave-tidal

Offshore engineer magazine