Hinn 31. mars átti framkvæmdastjóri Valorku ehf viðtal við forseta Íslands; Höllu Tómasdóttur. Erindið var að kynna forseta stöðu sjávarorkutækni og þá gríðarmiklu þýðingu sem nýting sjávarorku mun hafa í náinni framtíð, bæði hérlendis og á heimsvísu. Valorka er eina tækniþróunarfyrirtækið á þessu sviði hérlendis og hefur frá upphafi þurft að sjá um alla kynningu á þessu mikilvæga sviði hérlendis. Mikilvægt er að þeir sem fjalla um okkar auðlindir og annan þjóðarauð séu vel upplýstir; ekki síður forseti en önnur stjórnvöld. Halla Tómasdóttir er kunn fyrir víðsýni sína á öllum sviðum þjóðlífsins, og næmni fyrir velferð þjóðarinnar; jafnt í mannlegum þáttum sem viðskiptum, menntun og tækninýjungum.
Í ljós kom að Höllu var all vel kunnugt um verkefni Valorku og hafði fylgst nokkuð með framgangi þeirra frá upphafi. Eigi að síður þótti henni fengur að þessari kynningu. Henni var afhent skýrsla Valorku; "Sjávarfallaorka 2025 - staða tækniþróunar og nýtingar" og sagðist ætla að kynna sér hana vel. Rætt var um stöðu sjávarorkutækni almennt og hinn íslenska hverfil Valorku, sem hefur mikla sérstöðu og möguleika; ekki aðeins til nýtingar okkar eigin orkuauðlinda heldur einnig sem verðmæt útflutngsafurð. Rætt var um sjávarorkuauðlindir Íslands og kom Höllu á óvart; eins og mörgum öðrum, að heyra af fossinum mikla á Grænlandssundi, sem líklega er langstærsta orkuauðlindin innan íslenskrar efnahagslögsögu. Halla hefur víðtæka reynslu af viðskiptum og stjórnkerfi, og lagði fram góð ráð og hugmyndir sem vert er að hafa í huga við frekari þróun verkefna Valorku. Er forseta hér með þakkað fyrir góðan fund.