Stofnaður hefur verið áhugamannahópur um sjávarorku á facebook að frumkvæði Valdimars Össurarsonar og Hjördísar Bjarkar Ásgeirsdóttur, starfsmanna Valorku. Valdimar er ábyrgaðarmaður síðunnar. Með þessu verður til vettvangur fyrir þann fjölmenna og ört stækkandi hóp fólks sem hefur áhuga á sjávarorku og nýtingu hennar. Fólk vill fylgjast með því sem er að gerast og þeim möguleikum sem sjávaorkunýting býður upp á sem orkuvalkostur framtíðarinnar. Allir geta tekið þátt í umræðunni án nokkurra skuldbindinga, svo lengi sem umræðurnar eru uppbyggilegar og málefnalegar. Stjórnendur síðunnar munu setja þarna inn upplýsingar og fræðslu um þessi málefni og það sem er að gerast á þessu sviði; hér heima og erlendis. Vonast er til að umræður verði líflegar, og að í þeim megi greina samhljóm sem e.t.v. getur svo orðið það afl sem hvetur stjórnvöld til að huga betur að þessari umfangsmiklu og hreinu orkulind.
Á örfáum dögum hafa yfir 250 manns gerst aðilar að síðunni. sem kallast má "fljúgandi start". Fólk er hvatt til að fara á síðuna; skrá sig í hópinn; fylgjast með og kynna síðuna fyrir sínum vinum. Almenn umræða og þekking um möguleikana er það sem helst skortir í orkuumræðunni í dag.
Slóðin er https://www.facebook.com/groups/1486689199626491. Endilega fylgið og deilið.